Gervigreind í kennslu

Gervigreind í kennslu – skref fyrir skref
Þetta námskeið leiðir þig í gegnum helstu grunnatriði gervigreindar og sýnir hvernig hægt er að nýta hana á skapandi, gagnlegan og ábyrgan hátt í kennslu. Í stuttum einingum færðu fræðslu, dæmi og verkefni sem þú getur prófað strax í eigin skólastarfi.

 

  • Að efla öryggi og sjálfstraust kennara í notkun gervigreindar

  • Að stuðla að gagnrýninni hugsun og gervigreindarlæsi

  • Að bjóða upp á hagnýtar leiðir sem nýtast beint í kennslu

NÁMSEININGAR

Námseiningarnar eru hannaðar fyrir kennara sem vilja byrja smátt, prófa sig áfram og ræða notkun gervigreindar í eigin skólastarfi. Hægt er að vinna þær sjálfstætt eða í kennarateymum.

Kennarar geta farið í gegnum eina einingu í einu, þegar þeim hentar.

Kennarar geta leitað beint í hagnýta verkfærakistu sem nýtist þeim strax.

Kennarar geta nýtt efnið sem stuðning við innleiðingu gervigreindar.

Kennarar geta nýtt efnið á síðunni til samstarfs, samvinnu og umræðna.


Gervigreind í skólastarfi

Gervigreind

Gervigreind er ein áhrifamesta tæknibreyting samtímans og hefur þegar hafið að hafa veruleg áhrif á skólakerfi um allan heim. Grunnskólakennarar standa nú frammi fyrir þeirri spurningu hvernig þeir eigi að bregðast við þessari þróun, bæði sem notendur tækninnar í eigin kennslu og sem leiðbeinendur nemenda sem vaxa upp með gervigreind sem hluta af daglegum veruleika sínum.

„Ég sé fyrir mér að þetta gæti verið góð leið til að koma af stað umræðu í kennarahópnum. Það væri gagnlegt að fara í gegnum einingarnar saman og ræða svo hvernig við viljum setja okkur sameiginleg viðmið um notkun gervigreindar í skólanum.“

Harpa Hauksdóttir 

„Útlitið og gagnvirknin gerðu námskeiðið skemmtilegra en hefðbundið lesefni. Mér fannst gott að geta smellt, prófað og svarað spurningum jafnóðum.

Það hélt mér virkri í gegnum efnið.“

Birgit Ósk B.Bjartmarz

"Mér fannst áhugavert að fara í gegnum námskeiðið og ég veit að það á eftir gagnast mér í kennslu. Mér fannst mjög gott hvað námskeiðið var sett upp í stuttum og skýrum einingum. Það gerði efnið viðráðanlegt og auðvelt að taka það í litlum skrefum. ."

Sigríður Pálmarsdóttir